fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, fyrir innsýnina. Ég náði ekki að koma inn á í minni fyrri ræðu það sem hv. þingmaður nefndi í tengslum við samningsgerð ríkisins t.d. við Rauða krossinn á Íslandi um þjónustu við fólk á flótta. Það er akkúrat gott dæmi um það þar sem náðist góður samningur sem allt bendir til að hafi verið hagfelldur ríkissjóði, þar sem náðist ákveðin hámörkun þjónustu fyrir mun minna fé en líklegt er að það kerfi sem hæstv. ráðherra hefur núna tekið upp muni kosta, þó að það sé í raun auður tékki. Við vitum í raun ekkert hvað það verður mikið.
Það sem mig langaði að koma inn á líka er að í þeirri þingsályktun sem þessi fjáraukalög byggja á, sem sneri að breyttri skipan ráðuneyta, er mikil áhersla lögð á það að þessi breytta skipan eigi að leiða til meira samráðs og meiri heildarsýnar í ráðuneytunum, ólíkt því sem verið hefur. Ef maður kæmi algerlega reynslulaus að þeim texta og læsi hann algjörlega óháð því sem við þekkjum frá fyrri ríkisstjórn, sem er sú sama, þá hljómaði það ákaflega vel. Þar sagði t.d., með leyfi forseta:
„Eins og sjá má eru þessar breytingar á skipan ráðuneyta síðast en ekki síst til þess fallnar að fella ósýnilega múra stofnanamenningar og stuðla að samvinnu, samráði og samhæfingu innan Stjórnarráðsins.“
Ef við þekkjum til starfa þessarar ríkisstjórnar og þeirrar fyrri þá vitum við að þetta var alla vega ekki raunin á síðasta kjörtímabili. Þar var náttúrlega kjörorð ríkisstjórnarinnar bara: Þú sérð um þitt og ég sé um mitt. (Forseti hringir.) Það sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann um er þetta viðhorf sem við getum ekki annað en gert ráð fyrir að (Forseti hringir.) muni líka stýra vinnu núverandi ríkisstjórnar, að hver ráðherra sinni sínu, hver í sínu horni. Telur hv. þingmaður að þetta sé vænlegt í ljósi útgjalda ríkissjóðs með tilliti til þeirra breytinga (Forseti hringir.) sem við erum að tala um hér í dag og annarra þátta?
(Forseti (ÁLÞ): Menn eru minntir á að virða tímann.)