fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Í umræðum um þetta mál hefur verið farið yfir stóru myndina og efnahagsmálin rædd, staða heimilanna, fjölgun ráðuneyta o.s.frv. Ég ætla svo sem ekki að fara aftur í þá sálma enda hafa þeim verið gerð nokkuð góð skil. Mig langar að taka annan vinkil og hann er sá að ég hefði kosið að þessi fjárauki hefði verið nýttur til að laga augljósa vankanta á gildandi fjárlögum. Mér sýnist að í öllu havaríinu í kringum fjölgun og flutning verkefna og fjölgun ráðuneyta hafi menn ekki verið á varðbergi gagnvart því að tryggja að stofnanir geti starfað samkvæmt fjárlögum.
Mig langar að nefna eitt lítið dæmi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum hefur starfað í Ölfusi frá árinu 1939 og hefur unnið að framfaramálum hérlendis alla tíð og gert það að verkum að hér hefur byggst upp þróttmikil garðyrkja. Skólinn útskrifar milli 20 og 30 nemendur annað hvert ár frá nokkrum brautum. Fyrirtækjum á því sviði sem menntunin nær til er nauðsynlegt að geta fengið aðgang að menntuðum einstaklingum. Þá er í skólanum unnið mikilvægt þróunar- og vísindastarf sem er mikilvægt fyrir garðyrkju á Íslandi og vandséð hvernig hægt verði að viðhalda þessum iðnaði án aðkomu menntastofnunar eins og Garðyrkjuskólans þar sem allir helstu sérfræðingar landsins eru samankomnir.
Lengst af var skólinn sjálfstæð stofnun og í því umhverfi dafnaði skólinn og styrktist ár frá ári. Aðkoma garðyrkjubænda skipti þar miklu og þeir lögðu til fjármagn, búnað og þekkingu við uppbygginguna. Því miður voru þær breytingar gerðar fyrir tæplega 20 árum að Garðyrkjuskólinn var sameinaður Landbúnaðarháskóla Íslands. Var það gert þrátt fyrir viðvörunarorð þeirra sem best þekktu til; tilraun sem því miður mistókst algjörlega. Frá þeim tíma hefur staða garðyrkjunáms og vísindastarfs versnað til muna og húsnæði skólans er í niðurníðslu. Því sem næst engu fjármagni hefur verið veitt til viðhalds og því síður til nýrra framkvæmda og uppbyggingar á starfseminni. Þrátt fyrir að starfsemin hafi búið við skertar fjárveitingar á þessum tíma hefur starfsfólk gert hið besta úr stöðunni og náð að halda uppi miklu og góðu starfi, en það eru takmörk fyrir því hversu langt er hægt að ganga áður en starfsemin koðnar niður.
Starfsfólkið hefur um alllangt skeið talað fyrir breytingum á skipulagi skólans. Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að færa skólann undir Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ég hefði reyndar talið betra að fara aftur til fyrra horfs þegar skólinn var stofnaður og gera hann sjálfstæðan að nýju en um það er víst ekki rætt hér og nú. Eins og áður sagði er lagt til og búið að ákveða að skólinn verði undir Fjölbrautaskóla Suðurlands frá og með næsta hausti og þá kemur kannski að ástæðunni fyrir því að ég er kominn upp að ræða þetta tiltekna mál. Eftir því sem ég best veit er fjármagnið sem flutningunum fylgir samkvæmt gildandi fjárlögum, um 11 milljónir kr. Það er allt og sumt sem á að tryggja í flutninginn. Það er vitað að rekstur skólans kostar í það minnsta 350 millj. kr. á ári og augljóst að þessar 11 milljónir gera lítið þar til. Með þessu er einungis verið að varpa vanda skólans milli stofnana, þ.e. frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri til Fjölbrautaskóla Suðurlands og það verður ekki séð með þessu frumvarpi að ætlunin sé að bæta rekstrargrundvöll Garðyrkjuskólans og hvað þá að taka á þeim uppsafnaða vanda sem skólinn býr við. Ég skil þess vegna ekki af hverju ekki er brugðist við með þessu frumvarpi og það nýtt til þess að laga augljósa vankanta á gildandi fjárlögum í stað þess að láta málið hanga fram eftir árinu og bíða eftir næstu fjáraukalögum, hvenær sem þau koma.
Til þess að vinna á vanda Garðyrkjuskólans verður að veita fullnægjandi fjármuni þannig að hann geti sinnt hlutverki sínu. Það er í raun og veru ótækt að stjórnendur Fjölbrautaskóla Suðurlands og þeir sem eru að stýra þeirri deild sem Garðyrkjuskólinn á að vera í séu settir í þetta uppnám og geti kannski ekki tekið ákvarðanir vegna þess að ekki liggur fyrir hve mikið fjármagn á að koma til skólans. Ég vil því beina því til fjárlaganefndar að taka þetta til umræðu í nefndinni því að ljóst er að það verður að bregðast við með einhverjum hætti.