152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[19:25]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Við munum kannski eftir því fyrir nokkrum árum þegar Alþingi ræddi um brennivín í búðir í miðju bankahruni að þá var gert svolítið grín að þingheimi fyrir að vera úr tengslum við það sem væri að gerast í samfélaginu, úr tengslum við efnahag heimilanna og svona að fást við eitthvað allt annað. Ég dreg þetta upp vegna þess að mér finnst það sem við höfum verið að fást við í þessum þingsal undanfarna daga og vikur endurspegla að ósköp takmörkuðu leyti það ástand sem er uppi. Nú erum við að ræða fjáraukalagafrumvarp og þetta er ekki eiginlegt fjáraukalagafrumvarp að því leyti til að það er enginn fjárauki sem er mælt fyrir um í þessu frumvarpi. Þetta snýst bara um tæknilegar breytingar. Það er verið að færa útgjaldaliði milli ráðuneyta og málefnasviða.

Það sem við ættum auðvitað að vera að fjalla um og afgreiða eru mótvægisaðgerðir fyrir þau heimili sem verða verst fyrir barðinu á svona hröðum breytingum, bæði þegar kemur að verðlagi og þegar kemur að vaxtastigi. Slíkar aðgerðir eru í burðarliðnum eða hafa þegar komið til framkvæmda í flestum þeim löndum sem við berum okkur alla jafna saman við. Eins og ég nefndi áðan þá hefur fjármálaráðuneytið skilað af sér minnisblaði þar sem færð eru rök fyrir því að þau sjónarmið sem búa að baki slíkum aðgerðum eigi ekki við hér á landi. Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir, með leyfi forseta:

„Hækkandi orkuverð hefur minni áhrif á fjárhag heimila á Íslandi, þar sem kynding er almennt ekki háð olíu og gasi, en annars staðar. Bein hlutdeild olíu og orku í útgjöldum íslenskra heimila er mun lægri en víðast hvar og kostnaður hefur óvíða hækkað minna.“

Svo segir að síðastliðna 12 mánuði hafi kostnaður vegna kyndingar hækkað um 6% og samgönguútgjöld um 20% á sama tíma og kyndingarkostnaður í Evrópu hafi hækkað um tugi prósenta, ekki síst í þeim ríkjum sem nota gas til kyndingar. Auðvitað er þetta ástand sem kemur miklu frekar niður á neytendum í þessum löndum heldur en á Íslandi. Hér er verðbólgan fyrst og fremst drifin áfram af gersamlega sturluðum húsnæðismarkaði. Við sjáum það í nýrri skýrslu frá rannsóknarstofnun norrænu ráðherranefndarinnar að húsnæðisverð hækkaði mest á Íslandi af öllum Norðurlöndunum í heimsfaraldrinum. Það var líka þannig að atvinnuleysi jókst mest hérna og landsframleiðsla dróst mest saman. Að hluta til er það bara vegna þess hvernig atvinnulífið okkar er saman sett en auðvitað hefur líka sitthvað að segja hve stjórnvöld voru svifasein að bregðast við þeim gríðarlega framleiðsluslaka, þeim gríðarlega efnahagsskelli, sem kom til vegna heimsfaraldurs.

Verðbólgan hér er auðvitað knúin áfram af húsnæðisliðnum, eins og ég sagði áðan, og húsnæðiskostnaður er einhver stærsti útgjaldaliðurinn hjá flestum heimilum. Þess vegna var svolítið sérkennilegt að hlusta á hæstv. fjármálaráðherra nefna það sérstaklega að verðbólgan væri knúin áfram af húsnæðisliðnum sem — ég veit ekki alveg hvað hann meinti en hann sagði þetta, þetta var hans viðkvæði, hans svar við því þegar hér í þingsal var verið að vekja athygli á þeim gríðarlegu verðhækkunum sem heimilin verða fyrir, eins og það að húsnæðismarkaðurinn sé sökudólgurinn geri verðbólguna eitthvað skárri hér. Það er auðvitað ekki þannig sem við eigum að hugsa þetta. Þessar hröðu breytingar á verðlagi og vaxtastigi kalla á mótvægisaðgerðir hér rétt eins og annars staðar. Þetta eru aðgerðir sem, rétt eins og t.d. móttaka flóttafólks frá Úkraínu, móttaka sem mun auðvitað reyna á innviði okkar og kerfin — þetta kallar allt saman á auknar fjárheimildir. Það er eðlilegt að við á þinginu ræðum það en í staðinn erum við að dúlla okkur við frumvarp sem snýst bara um tæknilegar breytingar vegna uppstokkunar á Stjórnarráðinu. Gott og vel.

Eins og hefur komið hér fram í umræðunni ná heimili láglaunafólks með börn ekki endum saman og það er þannig jafnvel þótt fólk bæti við sig umtalsverðri aukavinnu. Þetta er dregið fram með mjög sannfærandi hætti í nýlegri úttekt sem Stefán Ólafsson félagsfræðiprófessor vann fyrir Eflingu stéttarfélag. Þar skoðar hann laun, lífeyrisiðgjöld, skatta og bætur með hliðsjón af viðmiðum félagsmálaráðuneytisins um framfærslukostnað heimila. Það er beinlínis hallarekstur á þessum heimilum. Hann sýnir fram á það með þessum samanburði. Þetta er auðvitað það sem við ættum að vera að tala um; mótvægisaðgerðir fyrir heimilin sem verðhækkanir og vaxtahækkanir bíta verst á. Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er ekki að finna eitt einasta mál sem tekur á þessu, ekki eitt einasta mál. Við höfum auðvitað heyrt yfirlýsingar frá ráðherrum. Þau tala um hitt og þetta í fréttatímum en það endurspeglast ekki með neinum hætti í því sem gengur á hér í þingsalnum. Hæstv. innviðaráðherra hélt ræðu um að gefa þyrfti þjóðinni aukna hlutdeild í arðinum af sameiginlegum auðlindum okkar. Það er óhætt að taka undir það en þetta segir hann kannski vegna þess að þarna er hann að tala um málefnasvið sem heyrir ekki undir hann. Hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur talað, eins og við höfum gert hér í dag og undanfarnar vikur, fyrir mótvægisaðgerðum fyrir tekjulág heimili sem eru skuldum vafin. En hún er ekki ráðherra bankamála, það er alveg á hreinu. Hæstv. fjármálaráðherra er nýlega farinn að taka undir þörfina á einhverju í þessa veru en það koma engin þingmál frá honum þessu tengd né endurspeglast það í því fjáraukalagafrumvarpi sem hér er til umræðu sem lýtur auðvitað bara að þessum tæknilegu atriðum. Þá veltir maður fyrir sér: Hvað er eiginlega á seyði þarna við ríkisstjórnarborðið? Er fólk einhvern veginn bara í vinsældakeppni frekar en einmitt að ganga rösklega til verks og taka á þessum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir?

Við erum einmitt að ræða um lífskjör og stöðu þeirra heimila sem hafa það verst, m.a. í samhengi við bankana og ákall hæstv. menningarmálaráðherra um að gripið verði til aðgerða, einhvers konar hvalrekaskattur lagður á bankana og þá jafnvel líka á sjávarútvegsfyrirtæki, sem mér finnst hljóma ágætlega, og ég held að við í stjórnarandstöðu ættum flest að geta tekið undir og hjálpað ríkisstjórninni með það, þeim sem eru enn með einhverja félagshyggjutaug. Í þessu samhengi langar mig að lesa upp góða ábendingu sem kemur fram í grein eftir Gylfa Zoëga í nýjasta tímariti Vísbendingar. Hann segir, með leyfi forseta:

„Mikill hagnaður banka árið 2021 vekur athygli. Eigendur þeirra gefa sér arðsemiskröfu og haga vaxtamun og upphæð þjónustugjalda í samræmi við hana. Það er ekki sjálfsagt að fyrirtæki í fákeppni ákveði einhliða arðsemi sína, ekki frekar en það sé sjálfsagt að launþegar ákveði einhliða kaupmátt launa sinna. Við bætist að íslenska ríkið styrkti fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum árin 2020 og 2021 um tugi milljarða til þess að forða þeim frá gjaldþroti á farsóttartímanum. Með þessum útgjöldum var komið í veg fyrir mikið útlánatap bankanna. En þá er varla sjálfsagt að eigendur bankanna haldi veislu í lok farsóttar með arðgreiðslum vegna góðs gengis á tímum þegar samfélagið var lamað.“

Það er einmitt í þessu samhengi sem hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, sem er nota bene ekki bankamálaráðherra, hefur kallað eftir hvalrekaskatti á bankana. Það er hægt að taka undir það. Ef þú ætlar að leggja á hvalrekaskatt þá þarf hann auðvitað að grípa hvalrekatekjurnar og slíkt þarf að dekka í tæka tíð. Það verður gert með lagabreytingum og þá er eðlilegt að fjáraukalagafrumvörp fylgi svoleiðis gerningum. En það er eins með þetta og allt hitt sem ég hef nefnt hér, mótvægisaðgerðir fyrir skuldsett tekjulág heimili, að það bólar ekkert á slíkum þingmálum. Þetta er allt í kjaftinum á þeim, svo að við höldum bara áfram að dúlla okkur við þetta dúllerí sem er orð sem hefur verið notað mikið hér í dag.

Það á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig þessi uppstokkun ráðuneytanna heppnast öllsömul. Það er alveg ljóst að uppstokkunin er nú þegar farin að tefja ákveðin mál. Þetta hefur komið fram á fundum hjá nefndum o.s.frv. Þetta hefur auðvitað líka valdið ákveðnum ruglingi, ekki var ljóst í upphafi hvaða stofnun heyrði undir hvaða ráðherra o.s.frv., en auðvitað óskar maður ríkisstjórninni góðs gengis með þetta allt saman.

Það sem maður hefur líka áhyggjur af er að ríkisstjórnin sé svolítið að nota þessa uppstokkun á ráðuneytunum sem skálkaskjól fyrir mjög óeðlilega beitingu á lögum, t.d. bara ákvæðum starfsmannalaga og meginreglum starfsmannaréttar um auglýsingaskyldu. Við sjáum þetta hjá menningar- og viðskiptaráðherra sem virðist algerlega ókleift að haga skipunum með eðlilegum hætti. Þar er einhvern veginn farið í það að selflytja ríkisendurskoðanda frá þinginu með alveg fordæmalausri beitingu á 36. gr. starfsmannalaga sem ég hefði nú ekki viljað að Alþingi tæki þátt í. Hitt sem er ekki síður alvarlegt er hvernig staðið var að setningu ráðuneytisstjóra í háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu. Umboðsmaður Alþingis hefur þegar gefið út álit um það. Þar var ekki farið að lögum. Þar lágu fyrir mjög skýr fordæmi, mjög skýrar leiðbeiningar frá umboðsmanni Alþingis í a.m.k. tveimur álitum sem gerðu það algjörlega fyrirsjáanlegt hvernig þetta mál myndi fara. En viðkvæðið hjá ráðuneytinu var að þetta væri allt saman réttlætanlegt út frá uppstokkun ráðuneytanna og það þyrftu nú að vera einhverjir ráðuneytisstjórar þarna og þetta þyrfti allt saman að gerast hratt. Ég hef því talsverðar áhyggjur af því hvernig uppstokkun Stjórnarráðsins er einhvern veginn notuð sem afsökun fyrir mjög óeðlilegri stjórnsýsluframkvæmd og mér finnst eðlilegt að nefna það hér þegar rætt er um frumvarp sem lýtur sérstaklega að uppstokkun ráðuneytanna.