152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[19:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það sló mig svolítið, þegar ég var að hlusta á hv. þingmann, að hann sagði að við værum að gera hér breytingar sem hefðu í raun engin áhrif önnur en að verið væri að flytja peninga á milli ráðuneyta. En á sama tíma sjáum við allar þessar breyttu forsendur. Ég hefði haldið að það hefði verið kjörið tækifæri, fyrst það var það ekki fyrir ráðuneytið, fyrir hv. fjárlaganefnd að uppfæra hina ýmsu hluti. Þá er ég ekki endilega að hugsa um útgjöldin heldur líka tekjurnar því að ég hefði haldið að verðbólgan og annað hefði áhrif á þá hlið líka. Það er kannski dálítið auðveldara að uppfæra slíka hluti en að segja: Ja, við ætlum að eyða svo og svo miklu í rafbíla eða eitthvað annað, af því að við sjáum það kannski eftir á. Þá er spurningin þessi: Hvað í þessum breyttu forsendum gæti haft mikil áhrif á tekjuhlið fjárlaganna? Við þyrftum að vera að hugsa um það núna vegna þess að kannski eru tekjurnar að hrapa stórlega og þar af leiðandi eru þau útgjöld sem búið er að samþykkja ekki endilega raunsæ lengur.