fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta mikilvæga andsvar. Tekjurnar geta auðvitað að einhverju leyti aukist vegna verðbólgu en vegna minnkandi hagvaxtar þá mun kannski draga úr þeim. Það er svolítið erfitt að segja nákvæmlega, ég er ekki alveg með það reikningsdæmi í kollinum. En auðvitað er það hárrétt hjá hv. þingmanni að forsendur fjárlaga núverandi árs eru algerlega brostnar og það er eitthvað sem þarf að huga að. Það er ekki nóg að leggja bara fram fjáraukalagafrumvarp sem lýtur einvörðungu að uppstokkun ráðuneytanna. Við ættum að vera að tala hérna um þessar breyttu forsendur og hvernig við ætlum að bregðast við því t.d. að verðbólgan sé að éta upp laun tekjulægsta fólksins, ekki bara laun heldur líka bætur fólks sem reiðir sig á almannatryggingar. Allar þessar forsendur eru brostnar vegna þess að verðbólga hefur rokið upp. Hún var 6,2% síðast þegar ég vissi og ég held að greiningardeildir bankanna spái því að hún fari upp í á bilinu 7–8%, en maður veit aldrei. Hingað til hefur verðbólgan aðallega verið vegna húsnæðismarkaðarins, en þegar það verða svona óvæntar vendingar úti í heimi þá getur ýmislegt gerst sem kannski enginn sá almennilega fyrir. Ég held að eftir því sem innflutta verðbólgan fer að láta á sér kræla í ríkara mæli þá verði þær forsendur sem lagt var upp með í fjárlögum núverandi árs enn veikari. Þetta er auðvitað það sem við ættum að vera að tala um hérna.