fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað hárrétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns, þetta er kannski svolítið sagan endalausa á þinginu. Við í stjórnarandstöðunni erum mjög fús að veita mikilvægum málum brautargengi og okkur dettur ekki í hug að tefja mál. En það er mjög sérkennilegt hvað stjórnarliðar virðast í raun hafa lítinn áhuga á að taka þátt í pólitískri umræðu við okkur. Þetta er málstofa, Alþingi, mikilvægasta málstofa á landinu, og það kemur manni sífellt á óvart að það er alltaf stjórnarandstaðan sem ber uppi samtalið hér meðan stjórnarliðar láta sig vanta. Það er varla að maður sjái þau — jú, maður hittir þau frammi þar sem kökurnar eru og svoleiðis. En það fer minna fyrir pólitískum skoðanaskiptum hér svo ég verð að taka undir með hv. þingmanni eins og ég geri nú svo oft.