152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[19:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður tók til orða einhvern veginn á þann hátt að þingið væri oft ekki í takt við almenning. Við værum hér oft að tala um eitthvað sem almenningur hefði kannski ekkert endilega áhuga á eða að við værum ekki að fjalla um hagsmuni sem skipta almenning máli. Við erum að ræða, undir heitinu fjáraukalög, peningamál, tilflutning á peningum milli ráðuneyta. En við gætum líka verið að ræða aðgerðir, eins og hv. þingmaður nefndi, fyrir tekjulægri heimili. Það hefur engin umræða fengist um það hér í þessum fjárauka að almenningur væri að upplifa það að sú staða sem uppi er sé farin að valda fólki erfiðleikum. Það er bara þrautin þyngri að glíma við það að vera með lágar tekjur og þurfa að reka fjölskyldu og heimili. Þá skiptir máli að velferðarkerfið okkar grípi þá sem þurfa á því að halda og mér finnst skorta upp á í umræðunni hér að við séum að velta því fyrir okkur til hvaða aðgerða við getum gripið þegar staðan er þessi. Það er grafalvarlegt mál að verðbólgan sé á þessum stað. Það var líka nefnt hér að húsnæðisliðurinn bæri uppi verðbólguna en við sjáum innflutta verðbólgu vera að aukast (Forseti hringir.) dag frá degi vegna þess að verðbólga í öðrum löndum er að aukast, (Forseti hringir.) kyndingarkostnaður er að aukast og þessi verðbólga verður flutt inn til okkar. Sér þingmaðurinn einhver færi á að styðja við þessi heimili nú þegar?