152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[19:55]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er hárrétt sem kom fram í máli hv. þingmanns. Það sem maður hefur áhyggjur af er einmitt þegar innflutta verðbólgan fer virkilega að segja til sín og bætist þá ofan á þessar húsnæðisverðshækkanir sem eru, eins og ég nefndi áðan og eins og kemur fram í þessari nýlegu skýrslu frá norrænu rannsóknarstofnuninni, meiri en þær hafa verið á hinum Norðurlöndunum, m.a. löndum þar sem ríkisstjórnir hafa nú þegar kynnt mótvægisaðgerðir fyrir heimili vegna þess að verðlag er að rjúka upp. Ég deili þeirri sýn með hv. þingmanni að það sé eðlilegt núna að huga að og ráðast í aðgerðir til að verja tekjulægstu heimilin sem verða hvað helst fyrir barðinu á verðhækkunum og hækkun vaxta. Ég óskaði eftir því, og reyndar líka hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, sem er hér fyrir aftan mig á forsetastóli, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir — við fjögur óskuðum eftir því, á fundi efnahags- og viðskiptanefndar þann 8. mars síðastliðinn, að haldinn yrði opinn fundur í nefndinni um þessi mál. Ekki hefur enn verið orðið við því en ég bind vonir við að það gerist á morgun eða hinn. Það er liðið það langt síðan við óskuðum eftir þessum fundi. Þá fáum við vonandi að heyra hvað það er sem er í burðarliðnum, hvað það er sem hefur verið rætt innan ríkisstjórnar, hvernig hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra sér fyrir sér að fylgja eftir hugmyndum sínum um hvalrekaskatt á banka og útgerðarfyrirtæki, hvernig hæstv. fjármálaráðherra ætlar að verja tekjulægri heimili með sértækum aðgerðum fyrir verðbólgu. (Forseti hringir.) Kannski munum við þá líka heyra eitthvað um húsnæðisliðinn frá hæstv. innviðaráðherra sem hefur farið mikinn um það í fréttatímum. Þetta kemur vonandi allt í ljós en það þarf að gerast sem allra fyrst.