skattlagning í sjávarútvegi.
Herra forseti. Nú hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, einn af leiðtogum ríkisstjórnarinnar, lýst því yfir að þjóðin eigi að fá stærri hlutdeild af sjávarauðlindinni. Hann segir nauðsynlegt að skattleggja ofurhagnað í sjávarútvegi, og tekur þar undir með öðrum ráðherra Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni. Þetta er vissulega nokkuð nýr tónn hjá einum af oddvitum ríkisstjórnarinnar en Samfylkingin fagnar þessari stefnubreytingu. Slíkt mál er ekki að finna í nýuppfærðri þingmálaskrá en ég er viss um að það megi bæta úr því enda mikill meiri hluti fyrir því samkvæmt mælingu að þjóðin fái sanngjarnan arð af sjávarauðlindinni.
Þess vegna langar mig einfaldlega að spyrja hæstv. fjármálaráðherra aðeins út í þessi orð: Hefur aukin skattlagning á ofurhagnað í sjávarútvegi verið rædd formlega við ríkisstjórnarborðið? Hvernig hugnast ráðherra yfir höfuð þessar hugmyndir félaga síns í ríkisstjórn? Og getum við átt von á því að ríkisstjórnin leggi til annaðhvort slíka skattlagningu ofurhagnaðar eða jafnvel hækkun á álögum í formi veiðigjalda?