152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

skattlagning í sjávarútvegi.

[10:44]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það er hægt að útfæra það með ýmsum hætti, eftir ólíkri stærð útgerða, en þetta voru tvær mínútur til að svara: Nei, hann er ekki sammála formanni Framsóknarflokksins. Þá er það skýrt. En af því að hæstv. fjármálaráðherra virðist vera í einhverjum vafa um hvað er ofurhagnaður og er væntanlega að búa til einhverja skilgreiningu um að það sé teygjanlegt hugtak þá var það þannig að Brim hagnaðist um 11,3 milljarða á síðasta ári, borgaði 900 milljónir í veiðigjöld en er að borga sér 4 milljarða í arð. Að sama skapi er Síldarvinnslan með 11 milljarða hagnað, borgar 531 milljón í veiðigjöldum en ætlar að borga 3,4 milljarða í arð. Við vitum að veiðigjöld standa ekki einu sinni undir eftirliti og utanumhaldi um auðlindina. Vísandi í þessar tölur, finnst hæstv. fjármálaráðherra að þessi tvö fyrirtæki séu aflögufær?