152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

skattlagning í sjávarútvegi.

[10:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég spyr mig: Af hverju leggur hv. þingmaður ekki til að fyrirtækin almennt í landinu borgi skatta eftir stærð? Eða er það bara í útgerðinni sem menn eiga að borga skatta eftir stærð? Ég átta mig ekki alveg á hugmyndafræðinni sem er hérna að baki. Tel ég að hægt sé að breyta veiðigjaldakerfinu? Já, ég talaði t.d. um það fyrir kosningar hvort við ættum ekki að velta því fyrir okkur að skoða, frekar en að fara dýpra inn í veiðigjaldatöku af útgerðaraðilum á Íslandi, að nota sérstakan tekjuskatt sem væru þá skilaboð til útgerðaraðila á Íslandi að þeir ættu að reyna að gera sem best, við myndum taka okkar skerf af hagnaðinum. En þessar tölur sem hv. þingmaður nefnir vill hann endilega setja í umræðuna algerlega án tillits til fjárbindingar, veltu o.s.frv. Hvernig væri að tala einhvern tímann um hagnað sem hlutfall af veltu? Hvernig væri að viðurkenna það að þegar menn greiða sér arð koma 22% í skatt til ríkisins? Hvernig væri að minnast á það að 20% af hagnaðinum koma til ríkisins? (Forseti hringir.) Það er ekki bara veiðigjaldið sem skilar sér til ríkisins heldur líka skattur af launum, það skilar sér tryggingagjald (Forseti hringir.) og skattsporið er ekki, eins og hv. þingmaður virðist halda, 900 milljónir (Forseti hringir.) þegar menn skila 11 milljarða hagnaði. (LE: Haltu þessa ræðu fyrir formann Framsóknarflokksins.)

(Forseti (BÁ): Forseti biður hv. ræðumenn og hæstv. ráðherra að virða ræðutímann, sem er takmarkaður í bæði fyrirspurnum og svörum.)