fjármál Reykjavíkurborgar.
Herra forseti. 70.000 milljónir af froðu hafi flotið upp í bókhaldi Reykjavíkurborgar. Froðan felst í endurmati fasteigna Félagsbústaða sem framkvæmt er á markaðsverði í stað þess að gera það á kostnaðarverði eins og reikningsskilareglur gera ráð fyrir þar sem ekki er um fjárfestingareign að ræða, enda húsnæðið notað sem félagslegt úrræði. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur í tvígang sent innviðaráðuneytinu bréf þar sem óskað er eftir rökstuðningi á reikningsskilum Reykjavíkurborgar sem kunna að vera í trássi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Hingað til hafa Félagsbústaðir, eins og áður segir, dótturfélag borgarinnar, metið fasteignir sínar á gangverði fremur en kostnaðarverði. Neyðist félagið til að breyta um matsaðferð gæti það leitt til hátt í 70 milljarða kr. niðurfærslu á virði fasteignasafnsins.
Í þessu samhengi langar mig til að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort eitthvert mat hafi verið lagt á það hvaða áhrif það hafi verði þessir 70 milljarðar af froðu færðir til rétts vegar í bókum borgarinnar, hvort einhver greining hafi verið unnin á áhrifum þess og hvort eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hafi afl til að takast á við verkefni eins og það að fá Reykjavíkurborg í fangið.