fjármál Reykjavíkurborgar.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að viðurkenna að ég þekki ekki smáatriði þessa máls og ætla ekki að þykjast vera löggiltur endurskoðandi til að kveða upp úr um það hvor aðferðin sé betri til að gefa glögga og skýra mynd af efnahag borgarinnar. En það er að jafnaði hlutverk endurskoðenda að skrifa upp á það að reikningsskilin gefi glögga og skýra mynd af stöðunni í rekstri og efnahag. Mér heyrist hv. þingmaður engu að síður vera að hreyfa við risastóru máli sem hefur þýðingu. Við höfum verið að vinna málin þannig hjá ríkinu á undanförnum árum að við höfum verið að innleiða hér alþjóðlega reikningsskilastaðla og höfum viljað auka gagnsæi. Við höfum verið að taka inn í reikningsskil okkar hluti sem hafa verið utan reiknings, eins og við þekkjum af Íbúðalánasjóði, og höfum þess vegna lagt sérstaka áherslu á að horfast í augu við skuldbindingar og raunvirði eigna. Við höfum verið að byggja upp efnahagsreikning ríkisins sem áður var ekki til. Við höfum verið að reyna að leggja mat á virði eignanna, eins og þetta dæmi snýst um, til að átta okkur á því hvort nýfjárfesting á hverju ári vinni á móti nauðsynlegum afskriftum og hvort við séum að ganga á eignastokk ríkisins yfir tíma. Hér sýnist mér hv. þingmaður vera að hreyfa máli sem snýr eingöngu að Reykjavíkurborg og eins og ég sagði áður þá þekki ég það ekki til að fara að kveða upp úr um það hvort þörf sé á því að eftirlitsnefnd taki til starfa eða hvort ESA hafi rétt fyrir sér. Það kemur mér reyndar dálítið spánskt fyrir sjónir að ESA hafi skoðun á þessu. Ég hefði haldið að það væru nú kannski heldur lánardrottnar og aðrir innlendir aðilar sem ættu fjárhagslega hagsmuni hjá Reykjavíkurborg sem vildu hafa skoðanir á því (Forseti hringir.) hvernig borgin gerir upp. En þetta er nú það besta svar sem ég get boðið hv. þingmanni upp á, (Forseti hringir.) þ.e. að ég er talsmaður þess að menn sýni rétt reikningsskil sem gefi glögga og skýra mynd.