152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjármál Reykjavíkurborgar.

[10:53]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég bið hv. þingmann að láta sér það nægja að ég segi að ég tek þessari ábendingu alvarlega og ég mun ganga eftir því að það verði skoðað hvort einhvers staðar í stjórnkerfinu sé verið að hlusta eftir þessum ábendingum, sem mér finnast vera ábendingar um það hvernig rétt sé að gera upp og gera reikningsskil, Það sem kemur mér á óvart í því efni er sérstaklega að ESA hafi eftirlit með slíkum hlutum, en það er kannski bara vanþekkingu minni um að kenna. En ég er að hlusta eftir því sem hv. þingmaður segir og mér finnst mikilvægt að við bregðumst við svona ábendingum. Ég þekki ekki hvort eftirlitsnefndin hafi burði til að takast á við svona stórt mál. En stundum er það þannig að þó að umfang málanna sé mjög stórt er hið undirliggjandi álitamál einfalt og kannski er það bara svona einfalt eins og hv. þingmaður var að lýsa hérna, með því að vísa aftur til niðurstöðu ESA.