nýting metangass.
Forseti. Í Álfsnesi er lífrænt sorp urðað og þar er metangas, sem einnig verður til þar, brennt á báli í stórum stíl. Metangas er vistvæn afurð sem er sóað í stað þess að nýta það. Nú þegar við erum á fleygiferð inn í orkuskiptin er átakanlegt að sjá hvernig við sóum slíkri vistvænni afurð í stað þess að nýta hana í ríkum mæli á bíla. Í kjölfar stríðsins í Úkraínu hefur verð á olíu hækkað og fullvíst að frekari hækkanir verða. Þeim mun mikilvægara er að Ísland verði sjálfbært í orkuframleiðslu og noti sína eigin framleiðslu og vistvænu orku sem til er í ómældu magni.
Sorpu einni og sér hefur mistekist að markaðssetja metan og ræður ekki við að koma metaninu á markað. Þarna þarf ríkið og hæstv. umhverfisráðherra að beita sér, annars verður þessum vistvæna orkugjafa áfram sóað í stórum stíl. Akureyri hefur sýnt gott fordæmi þegar kemur að nýtingu metangass og staðið sig með sóma á meðan við brennum metani eins og enginn sé morgundagurinn hér á höfuðborgarsvæðinu.
Er ráðherra sammála mér um að nauðsynlegt sé að nýta betur það metan sem safnast hjá Sorpu? Og myndi ráðherra styðja samstarf milli ríkis og sveitarfélaga um að finna lausnir til að nýta metan í þágu orkuskipta?
Eins og við vitum öll er Sorpa byggðasamlag og að því standa sex sveitarfélög, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes.