152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

nýting metangass.

[10:56]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu. Ég hef nú gert það sjálfur, þetta kom fram í skýrslunni, í grænbókinni um stöðuna í orkumálunum. Þar segir á blaðsíðu 84, með leyfi forseta:

„Metan er framleitt á tveimur stöðum á landinu. Gasgerðarstöð Sorpu framleiðir 3 milljónir Nm3 af metani árlega. Metanið dugar til að knýja um 4.000-6.000 fólksbíla eða um 100 strætisvagna. Norðurorka framleiðir um 250 þúsund Nm3 árlega úr gömlu landfyllingunni í Glerárdal sem knýr um 8 almenningsvagna og fjölda fólksbíla. Framleiðslugeta metans er um fjórfalt meiri en metanknúin ökutæki landsins nota.“

Ég verð að viðurkenna að ég skil bara ekki hvernig þessi staða getur verið uppi. Mér finnst þetta með slíkum ólíkindum. Það er alveg augljóst að við erum ekki að fara að nota þetta á allan bílaflotann. Hérna er orkugjafi sem hefur reynst mjög vel. Ég var reyndar að koma frá Akureyri og þar er þetta til algjörrar fyrirmyndar. Þar nota þeir bara allt það metan sem þeir geta, og þar ganga Akureyrarbær og önnur fyrirtæki í þessum geira á undan með góðu fordæmi.

Virðulegur forseti. Ég hef litið á það sem mitt hlutverk, ekki bara sem umhverfis-, orku-, loftslagsráðherra heldur bara almennt, að maður er að reyna að vinna með fólki en ekki að segja því hvað það á að gera. En af hverju í ósköpunum notar Reykjavíkurborg ekki þetta metan? Mér er það algjörlega hulin ráðgáta. Eða aðrir þeir aðilar, sem eru fjöldamargir og sem geta nýtt sér þetta? Því að þetta er til staðar, eins og hv. þingmaður vísaði til, og það er ekki eftir neinu að bíða. Þetta virkar, þetta er gert á Akureyri en að mjög litlum hluta hér. Hér eru algerlega ónýtt tækifæri, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.