152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

nýting metangass.

[10:58]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Sem borgarfulltrúi í minni hluta hefur sú sem hér stendur lamist og barist í þessu máli í fjögur ár í borgarstjórn og ekki fengið neina hlustun frá meiri hlutanum þar, Samfylkingunni, stærsti flokkurinn, og á vakt Vinstri grænna sem hefur verið með stjórnarformann og er með stjórnarformann núna í Sorpu en öll þekkjum við Gaju og þau hræðilegu mistök sem þar hafa orðið fjárhagslega. Hreint og stórt klúður. Þannig að hér stend ég núna og óska liðsinnis hæstv. umhverfisráðherra, að koma til hjálpar og reyna að koma vitinu fyrir þá flokka sem stýra borginni núna og eiga eftir að gera það örfáar vikur enn. Þetta gengur ekki lengur. Við getum ekki horft upp á að metani sé sóað. Þetta er hrein og klár heimska og ef meiri hlutinn í borgarstjórn er ekki betur gerður en það að geta ekki gert eitthvað í málinu þá þarf ríkisvaldið að koma hér inn í og hjálpa til. Hér er kallað eftir aðstoð frá ríkisstjórn í þessu máli.