152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

nýting metangass.

[10:59]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég held að aðalatriði málsins sé að það er auðvitað ekki boðlegt að staðan sé með þessum hætti eins og hv. þingmaður lýsti ágætlega. Þetta er ekki beint á borði þess sem hér stendur en breytir því ekki að þetta vakti athygli mína þegar ég las þetta í skýrslunni því að síðast þegar ég vissi þá voru menn með mjög metnaðarfull markmið um að nýta metanið og við þekkjum það, ég á nú bara einn góðan vin sem hefur verið á metanbíl í tíu ár og hann virkar bara mjög vel, að það voru uppi hugmyndir um það hjá Reykjavíkurborg að nýta þessi augljósu tækifæri. Ég mun auðvitað gera hvað ég get til að hvetja menn til að nýta það sem þarna er, því að við erum að horfa fram á gríðarlega stór verkefni þegar kemur að loftslagsmálum. Mörg verkefni eru mjög auðveld og þetta er bara til staðar. Það þarf ekkert annað en pólitískan vilja til að nýta það sem við eigum. Ég vonast bara til þess að svo megi verða og kannski mun þessi umræða hér sem hv. þingmaður hafði forgöngu um hafa einhver áhrif. Við skulum vona það.