152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

markmið með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

[11:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu er það eitt af markmiðum ríkissjóðs við sölu á Íslandsbanka að hámarka endurheimtur við söluna. Það er opinbert og hefur verið skýrt markmið okkar að gera það. En við vildum ekki setja það sem eina markmiðið með sölunni. Þeir sem hefðu lagt upp með það sem eina markmiðið hefðu þá bara boðið allan bankann til sölu einhverjum einum kaupanda, það hefði bara verið einfalt, og sá sem byði hæst fengi. Við vildum ekki gera það. Við vildum leggja áherslu á það að fá heilbrigt eignarhald, dreift eignarhald. Við fórum í upphafi leið almenns útboðs og þótti takast mjög vel þannig að eftir var tekið, líklega stærsta einkavæðing í Evrópu í fyrra. Þetta nýafstaðna útboð er eitt þeirra stærstu í sögunni, ekki bara á Íslandi heldur líka á þessu ári í Evrópu.

Þannig að þegar þessi markmið eru borin saman þá verða menn að taka afstöðu til þess hvort heildarniðurstaðan er í samræmi við það sem lagt var upp með. Fengum við fjárfesta sem vildu halda á hlutnum til lengri tíma t.d.? Er það eftirsóknarvert yfir höfuð að hafa dreift eignarhald? Er skynsamlegt að leggja áherslu á að fá bæði erlenda og innlenda aðila? Ég segi já við öllum þessum spurningum. Með því erum við að segja að verðið ráði ekki eitt, en við fengum, bæði í fyrra og í útboðinu sem er nýafstaðið, mjög gott verð, fengum verðið sem var í gildi núna í janúar og febrúar og var þá hæsta verðið sem bankinn hafði verið skráður á síðan þá. Fram að útgreiðslu arðsins sló gengið hæst upp í um 129, eftir útgreiðslu arðsins jafngildir það tæplega 123 í gengi (Forseti hringir.) og við seljum á 117 með 4,1% afslætti af hæsta gengi frá skráningu, (Forseti hringir.) sem er bara verulega vel að verki staðið.