markmið með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Ég verð bara að segja alveg eins og er að þetta slær mig sem hundalógík sem hv. þingmaður kemur með hér, að teikna það þannig upp að menn hafi bara með opin augun selt bankann 30 milljörðum ódýrari en hann var raunverulega metinn á. Þetta stenst enga skoðun. Virði bankans vex við það að hann er skráður. Þegar verið er að reyna að koma bankanum inn í kauphöll eru fyrstu skref tekin með því að leita út til breiðs hóps og við létum þá keppast um að fá að taka þátt í í kaupunum og það gerði almenningur líka. Berum þetta saman við t.d. það þegar eigendur Arion banka seldu sinn banka eða þegar aðrir sem hafa haldið á eignum sem eru á leiðinni inn í kauphöll, hvað þeir hafa væntingar um — tökum Síldarvinnsluna sem dæmi. Gáfu sem sagt eigendur Síldarvinnslunnar bara tugi milljarða með því að skrá fyrirtækið á markað? Voru þeir að gefa bara nýjum hluthöfum tugi milljarða? En tugir milljarða er það sem fyrirtækið hefur hækkað um (Forseti hringir.) síðan það var skráð. Þetta er svo mikil hundalógík að það er eiginlega ekki hægt að svara þessu.