þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.
Virðulegi forseti. Þann 16. júní 2009 ályktaði Alþingi að hefja skyldi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þjóðin var ekki spurð álits. Þann 12. mars 2015 tilkynnti þáverandi utanríkisráðherra að ríkisstjórnin hygðist hætta viðræðum. Þjóðin var ekki spurð álits. Aðild að Evrópusambandinu er gríðarlega stórt hagsmunamál fyrir íslensku þjóðina, snýst um nánara samstarf við þau ríki sem standa okkur næst menningarlega og sögulega, aðild að viðskiptasamningum við ríki utan Evrópu sem við eigum enga slíka samninga við í dag, aðgang að efnahags- og myntbandalagi Evrópu sem getur frelsað okkur frá hinni sveiflukenndu krónu hafta og hárra vaxta og aukna lýðræðislega aðkomu að löggjöf um neytendavernd, umhverfisvernd og mannréttindi sem Evrópusambandið er í fararbroddi við að móta. Nú hefur stríð í Evrópu sýnt með skýrum hætti mikilvægi þess að við höldum nánu og sterku sambandi við þær þjóðir sem við deilum með hagsmunum og gildum.
Það er stór ákvörðun að sækja um aðild en það er líka stór ákvörðun að gera það ekki. Sú ákvörðun á heima í höndum þjóðarinnar sem hefur aldrei verið spurð álits. Skoðanakannanir sýna stóraukinn stuðning við áframhaldandi aðildarviðræður. Sú þróun á sér ekki eingöngu stað hér á landi.
Hæstv. forsætisráðherra sagði í þessum sal í síðustu viku að það hefðu verið mistök að fella niður kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Mikilvægast væri þó að meiri hluti væri á þinginu. Hæstv. ráðherrar tala um svokallaðan þjóðarvilja sem sumar þjóðir kalla lýðræði. Því vil ég spyrja hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins hvort afstaða hans sé sú að þjóðin skuli aðeins spurð álits um mál sem þegar er þingmeirihluti fyrir.