þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.
Virðulegi forseti. Þetta er ágæt kjarnaspurning sem kemur hér fram í restina, sem ég ætla að koma inn á á eftir. En ég ætla fyrst að segja: Já, það er mikilvægt að ræða Evrópusambandsmálin, mögulega aðild, opið, alveg óhindrað, hvenær sem er hér í þinginu. Tengsl okkar við Evrópu — við létum reyndar taka saman sérstaka skýrslu um þau mál á síðasta kjörtímabili þar sem varpað var ljósi á marga góða kosti við EES-samstarfið sem á engan hátt er þó gallalaust. Því fylgja ekki bara kostir að ganga í Evrópusambandið, því fylgja líka miklir gallar.
Hér talaði hv. þingmaður um að við myndum njóta svo mikið góðs af allri lagasmíðinni sem kæmi frá Brussel. Ég ætla að segja það sem mína skoðun að það er orðið tímabært að menn hafi smá reisn hér á þinginu og trúi því að við getum verið sjálfbær um lagasmíð á Íslandi án þess að þurfa að afrita hana frá Brussel. Við þurfum aðeins að átta okkur á því að margt af því sem við þurfum að innleiða vegna EES-samningsins eru atriði sem hafa oft á tíðum lítið með íslenskan veruleika að gera og taka verulegan tíma í þingstörfunum. Ég er þeirrar skoðunar að við séum fullfær um að gera þetta allt saman. Við getum horft til góðra fordæma annars staðar frá en við þurfum ekki að afsala okkur stórum hluta fullveldis með því að ganga í Evrópusambandið og treysta á hina góðu lagasmiði sem hv. þingmaður hefur mikla trú á og eru oft á tíðum embættismenn með nákvæmlega ekkert lýðræðislegt umboð, sem hann gerir mikið úr. Fólk sem fær lítinn stuðning í kosningum í aðildarríkjunum þvælist inn á Evrópuþingið, á engan frumkvæðisrétt. Evrópusambandsþingmaður á engan frumkvæðisrétt, hann getur ekki einu sinni lagt fram lagafrumvarp. Lagafrumvarpið er smíðað í embættismannahöllinni í Brussel. Það er lýðræðið sem hv. þingmaður er svo hrifinn af.
Ég held að við eigum mikið eftir ólært í framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Og já, ég er þeirrar skoðunar að það geti skapast tóm vandræði af því að leggja fyrir þjóðina spurningar sem fyrir fram liggur fyrir að meiri hluti þingsins er á móti. (Forseti hringir.) Ég býð ekki í það hvað þingmeirihlutinn á að segja við starfsbræður sína í Brussel þegar þeir ætla að fara að handsala samninginn og þingmennirnir og ráðherrarnir segja: Takk fyrir viðræðurnar. Ég ætla að fara heim og berjast gegn niðurstöðunni.