152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.

[11:13]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V):

Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um að lýðræðisins væri ekki best gætt með inngöngu í Evrópusambandið. Nú þegar innleiðum við þær reglur og þau lög sem varða fjórfrelsið en við höfum enga lýðræðislega aðkomu að því að smíða þau lög. Það myndi breytast ef við hefðum okkar eigin kjörnu fulltrúa á því þingi sem við af einhverri ástæðu treystum í dag til að smíða þessi mikilvægu lög fyrir okkur. Þar liggur hin aukna lýðræðislega aðkoma okkar með inngöngu í Evrópusambandið.

Hæstv. fjármálaráðherra hefur endurtekið þá möntru að Íslandi sé best borgið utan Evrópusambandsins. Ég fagna því að hann sé opinn fyrir því að ræða það betur því að endurtekningin gerir þessa möntru ekki sanna. Ég ítreka að innganga í Evrópusambandið er stór ákvörðun en það er jafn stór ákvörðun að hafna henni. Alvarlegast er þó að ætla ekki einu sinni að leyfa þjóðinni að taka afstöðu til málsins. Víða erlendis hafa þjóðaratkvæðagreiðslur sýnt fram á eina niðurstöðu og ráðherrar sem fallast ekki á hana hafa sagt af sér (Forseti hringir.) vegna þess að þeir njóta ekki lengur stuðnings hjá meiri hluta þjóðarinnar. (Forseti hringir.)

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvers vegna vill hann ekki leyfa þjóðinni að eiga aðkomu að þessari stóru ákvörðun? Hvað hefur hann að óttast?