lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Mér er nokk sama hvort þetta heitir um atkvæðagreiðslu eða fundarstjórn af því að þetta snýr að því að hæstv. forseti hafi ákveðið að setja lengd þingfundar í atkvæðagreiðslu. Það ríkir stjórnleysi hér á Alþingi. Það virðist vera sem tímastjórnun sé mjög ábótavant hjá forseta. Það ríkir stjórnleysi hjá ríkisstjórn sem kemur hér með endurskoðaða þingmálaskrá með nýjum þingmálum og ráðherra kemur svo daginn eftir með eitthvað nýtt og óboðað þingmál. Það virðist vera sem það skipti engu máli þó að þingfundadögum hafi verið fjölgað í síðustu viku um einn og í þessari viku um tvo. Hæstv. forseti telur sig samt þurfa að hafa lengri þingfund á degi sem áður hafði verið ætlaður og samþykktur af forsætisnefnd sem nefndadagur. Það átti ekki einu sinni að vera þingfundadagur í dag heldur nefndadagur. Eðlilega, á venjulegum vinnustað, eru þeir sem hér starfa búnir að undirbúa daginn sinn með tilliti til þess að í dag sé nefndadagur, sem þurfti svo að breytast yfir í þingfundadag, allt í lagi, með stuttum fyrirvara. En ég kalla eftir því að forseti geri hlé á þessum fundi, setjist niður með ríkisstjórn Íslands og þau reyni að koma einhverju skikki á starfið hér innan húss. Þetta er orðið algjörlega óboðlegt. Það er ekki verið að vinna hér í þágu almennings eins og ríkisstjórnin á að gera. Við þurfum bara að fá ákveðna stjórn á dagskrána, virðulegur forseti.