152. löggjafarþing — 56. fundur, 24. mars 2022.
lengd þingfundar.
Forseta er ljúft og skylt að svara því að ástæða þess að forseti leitar eftir lengri þingfundi er sú að afar hægt hefur gengið að afgreiða mál í gegnum 1. umr. á undanförnum dögum og vikum. Forseti telur að þörf þingmanna til að tjá sig um einstök mál að þessu leyti geri það að verkum að ástæða sé til að rýmka aðeins til um þingfundartímann til þess að mæta þeirri eftirspurn.