152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það verður nú bara að segjast eins og er að manni finnst eins og hér sé sett upp einhvers konar leikrit í þinginu. Það rifjast upp mikilvægasta gildi þjóðfundarins hérna um árið: Heiðarleiki. Hver er raunveruleg staða í þinginu? Er hún ekki sú að hin einföldustu mál kalla allt í einu á gríðarlega langa umræðu og nú þegar þingforseti bregst við þessari miklu eftirspurn eftir að fá að ræða málin í þaula, þá standa menn upp og segja: Þetta er alveg ómögulegt, ómögulegt að gefinn sé aukinn tími til að ræða málin. Jú, vegna þess að stjórnarliða vantar í umræðuna. Þetta er svona álíka furðulegt og þegar ég heyrði þingmenn stjórnarandstöðunnar kvarta undan því að ráðherra ætlaði ekki að koma með mál inn í þingið. Öðruvísi mér áður brá. Þegar ég var í stjórnarandstöðu vildi ég helst að ríkisstjórnin, sem ég var á móti, kæmi bara sem minnst með ný mál og væri að breyta lögum. En nú eru tímarnir aðrir. Stjórnarandstaðan kvartar undan því að fá ekki mál sem meiri hlutinn styður og saknar þess að fá stjórnarliða í umræðuna en vill alls ekki fá lengri ræðutíma.