lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra bar sig aumlega og talaði um að stjórnarandstaðan væri að kalla eftir málum. Við erum að kalla eftir þeim málum sem ríkisstjórnin hefur boðað að hún ætli að leggja fram. Í nýjustu uppfærslu ríkisstjórnar á þingmálaskrá, annarri uppfærslu frá því í desember, kemur í ljós að þau ætla að fella 34 mál niður, sem er fínt af því að það er alveg augljóst að þau munu ekki geta staðið við það sem þau sögðu í upphafi varðandi dagskrána. En hvað er líka þar? Það eru 31 mál sem áttu að vera komin í janúar og febrúar og eru ekki enn þá komin. Við erum að kalla eftir því að það sé eitthvert kontról á galskapnum, virðulegur forseti, að það sé einhver að horfa á þá dagskrá sem fram undan er, að það sé einhver með eitthvert skipulag af því að til þess að við getum vandað til verka, sem ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er kannski ekkert sérstaklega upptekinn af þessa dagana, þá þurfum við að virða ákveðinn tímaramma. Það eru 24 klukkutímar í sólarhringnum og það eru sjö dagar í vikunni. Það er rammi sem við getum ekkert hringlað með. (Forseti hringir.) Meira að segja hæstv. forseti og hæstv. ríkisstjórn verður að virða þetta. Við ráðum ekki við tunglganginn og sólarganginn. (Forseti hringir.) Við erum að biðja ykkur um að hafa einhverja reglu á því sem þið sjálf segið, þó að ekki væri nema annað.