152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í ljósi orða hæstv. forseta hér áðan þá langar mig til að koma hér upp svolítið til varnar 1. umr. mála hér í þinginu. Nú er ég þingmaður fyrir flokk sem á aðeins fastafulltrúa í tveimur af átta fastanefndum þingsins. Við erum til að mynda ekki í þeirri stöðu í sex nefndum af átta að geta lagt fram nefndarálit. 1. umr. er okkur tiltölulega mikilvæg til að koma fram sjónarmiðum, óska eftir því að nefndin skoði tiltekin atriði í málum og þar fram eftir götunum. Þannig að ég vil halda því til haga að 1. umr. verði ekki hanteruð sem einhvers lags formsatriði til að koma málum áfram á færibandi stjórnarflokkanna. Staðreyndin er sú, í ljósi orða hæstv. fjármálaráðherra, að ég er þeirrar skoðunar að best væri að núverandi ríkisstjórn legði fram sem fæst mál því að fæst eru þau til bóta þessa dagana, því miður. Ég mun styðja góð mál sem koma fram en ég vil að við nálgumst 1. umr. með tilhlýðilegri virðingu því að fyrir sum okkar hér inni þá er hún eina aðkoman þar til fulltrúar meiri hluta í nefnd hafa klambrað saman nefndaráliti, sem er hér um bil aldrei vilji til að gera neinar breytingar á gagnvart afstöðu stjórnarflokkanna.