lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Það er skrýtið að koma hingað upp og segja að stjórnarliðar hafi ekki mætt í umræðuna þar sem maður hefur bara ekki tök á að mæta því að maður veit ekkert hvenær mál eru á dagskrá. Það er fullt af málum þar sem ég hugðist taka þátt í umræðunni en ég vissi bara ekki hvenær stjórnarandstöðunni dytti í hug að hleypa viðkomandi máli á dagskrá. Það færðist um daga. Ég vil líka benda á að sum af þessum málum — við erum t.d. búin að vera að bíða í nokkra daga eftir að komast inn í umhverfis- og samgöngunefnd til að ræða fjarskiptamálið, kalla eftir umsögnum og taka umræðuna til að málið komist í 2. umr. Ef það tefst í langan tíma að svona mál komi inn í nefndina þá mun það hafa áhrif á vinnu Alþingis við þessi mál, hvenær umsagnaraðilar geta komið, hvenær við náum að skila nefndarálitinu og hvað komið er nálægt þinglokum og annað þegar málið kemst á dagskrá. Þannig að ég skil bara ekki alveg dagskrárstjórn stjórnarandstöðunnar í þessu máli.