152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:49]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Já, ég ætla nú að taka undir með hæstv. fjármálaráðherra og segja: Við viljum sem fæst mál frá þessari ríkisstjórn. Það er svo sem alveg rétt, m.a. vegna þess að forgangsröðun hennar er bara alls ekki í lagi. Nægir þar að nefna að ekki er minnst á heimilin í einu eða neinu sem þessi ríkisstjórn leggur fram. En við gerum okkar besta til að lagfæra málin sem frá þeim koma og til þess er 1. umr. Það er til þess að við getum haft áhrif á og bent á ágalla sem oft eru bara nokkuð augljósir fyrir stjórnarandstöðunni. Það hefur einn ráðherra á undanförnum vikum lagt sig eftir því að sitja hérna og hlusta og hann tók helling frá því. Hann sagði að það hefði verið fullt af góðum ábendingum og hann tók þær til greina. Það væri mjög gott ef fleiri ráðherrar tækju hann sér til fyrirmyndar og hlustuðu á það sem stjórnarandstaðan er að segja. Þá þyrftum við kannski ekki svona margar ræður.