lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég get ekki orða bundist eftir það sem hæstv. fjármálaráðherra sagði hérna áðan. Hvers vegna er það nú sem við köllum stundum eftir málum frá stjórnarmeirihlutanum og frá ríkisstjórninni? Það skyldi þó ekki vera vegna þess að stjórnmálamenningin hérna inni er bara þannig að þingmannamál eiga ekki séns nema þau snúist um eitthvað mjög afmarkað, nema þau hafi ekkert með stóru myndina og t.d. efnahagsmálin að gera í raun. Nú liggur fyrir þinginu fjöldi mála sem varðar efnahag heimila vegna hækkandi verðlags og hækkandi vaxta. Ætla þingmenn stjórnarmeirihlutans að liðka fyrir þeim málum og tryggja að þau fái skjótan framgang? Nei, þessi mál verða svæfð og á meðan bíðum við eftir einhverju frá stjórnarliðum sem ekkert bólar á.
Hvar eru mótvægisaðgerðir vegna hækkandi verðlags og hækkandi vaxta? Hvergi á þingmálaskránni, það bólar ekkert á því, (Forseti hringir.) alveg sama hversu miklar yfirlýsingar hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra er með eða hæstv. innviðaráðherra, jafnvel fjármálaráðherra. (Forseti hringir.) Þannig að við viljum a.m.k. að þingmálaskránni sé fylgt.