152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Vegna ótrúlegra orða hæstv. fjármálaráðherra þá verð ég að blanda mér í umræðuna. Ég ætlaði að láta það eiga sig en þetta var ótrúlega innkoma. Samræður eða samtal, eða hvaða hugtök við notum um þetta, það er algjörlega nauðsynlegt fyrir minni hlutann að fá tækifæri til að ræða við meiri hlutann um þeirra eigin mál. Ráðherrar og stjórnarliðar hafa nú ekki beinlínis þvælst fyrir í umræðum vikunnar. Svo kveinkar meiri hlutinn sér undan gagnrýni á þeirra eigin slöku viðveru og verkstjórn. Þetta er stórkostlegt. Þessi salur kemur varamönnum sífellt meira á óvart. [Hlátur í þingsal.] Undan má þó skilja, til að gæta allrar sanngirni, hæstv. heilbrigðisráðherra.