lengd þingfundar.
Hæstv. forseti. Það er forseti þingsins, alls þingsins, sem fer með dagskrárvaldið á hinu háa Alþingi og það er forseta að gæta þess að jafnvægis sé gætt í þingstörfunum og að hagsmuna bæði meiri hluta og minni hluta sé gætt. Það er aðalverkefni forseta og þess vegna er starf hæstv. forseta það mikilvægasta sem fram fer hér á þessum vinnustað, það allra mikilvægasta. Dagskrárvaldið er í höndum forseta. Forseti getur tekið fram fyrir hendurnar á ráðherrum af því að hann stýrir dagskránni hér, raðar á hana, metur það á hverjum degi hvernig eigi að starfa. Í því mati fer fram samtal við fulltrúa stjórnarandstöðunnar og auðvitað líka meiri hlutans um það hvernig við vinnum saman í þessum sal. Það er svo önnur umræða hvort og hvenær við breytum reglunum sem við vinnum eftir hér í þessum sal. En á meðan reglurnar og lögin eru svona þá hefur stjórnarandstaðan mjög lítil tækifæri (Forseti hringir.) til að hafa áhrif á dagskrársetninguna hér. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)