152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:55]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég get upplýst þingheim, ef einhver vissi það ekki, að fólk víða undrast vinnutímann í þessari stofnun. Þó að við sitjum á elsta starfandi þjóðþingi heims þá þurfum við ekki að halda í þær reglur og hefðir sem settar voru í upphafi. Ef við hefðum gert það værum við ekki að greiða atkvæði með hnöppum heldur með því að slá saman vopnum. Aftur á móti hefur orðið gífurleg þróun í þingsköpum og þingstörfum víða í heiminum til að gera þau skilvirkari og vinnutímann eðlilegri. Það er gagnrýnt að þingfundir séu langir. Ég var hér fram á miðnætti á þriðjudag vegna þess að í þingsköpum stendur að þingmönnum sé skylt að sitja þingfundi, hvern einasta. Það var ekki þéttsetinn salurinn, en þetta er skylda okkar sem erum hér. Ég get ekki tekið undir það að málin dragist óeðlilega lengi, (Forseti hringir.) þau eru bara rædd þangað til að þau hafi verið rædd út og þá eru þau tekin áfram. (Forseti hringir.) En það má vel gera gífurlega bragarbót á þeim reglum sem gilda um þingstörfin.