152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða um atkvæðagreiðsluna, ekki satt? Ég ætla að segja já og greiða atkvæði með lengdum þingfundi. Ég heyri hér að það brennur margt á fólki. Sjálf var ég ekki við störf hér í síðustu viku, var með Covid og var svo á þingi Norðurlandaráðs í byrjun þessarar viku, þannig að ég bíð spennt. Hér er full dagskrá af spennandi málefnum sem ég er tilbúin að taka þátt í. Þannig að ég segi já við lengdum þingfundi. Hættum að væla og förum að vinna.