lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka að það er auðvelt að semja um vinnutíma hér á Alþingi og það er með því að semja við stjórnarandstöðuna um það hvaða mál fái framgang á Alþingi og hvaða mál fái ekki framgang á Alþingi. Það er þannig sem á að vinna þetta. Ég er í hjarta mínu ekkert á móti öllum málum ríkisstjórnarinnar. Þessar kenningar um að stjórnarandstaðan sé á móti hverju einasta máli sem kemur frá þingmeirihlutanum á rætur í sögunni og hjá fyrrverandi borgarstjóra, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins. Þessi menning þýðir að stoppa beri hvert einasta mál sem kemur frá stjórninni ef þú ert í stjórnarandstöðu. Ég bara fullyrði það sem borgari í landinu, og ég er búinn að fylgjast með stjórnmálaumræðu á Íslandi, að þetta er algerlega svartur blettur á stjórnmálaumræðu á Íslandi. Virðing Alþingis er hér undir. Það er mjög einfalt mál að semja um þetta. Mér finnst að svona tillaga um að lengja fundartíma Alþingis eigi ekki að koma til atkvæðagreiðslu fyrr en búið er að reyna samningaviðræður við minni hlutann um það hvaða mál fái framgang á Alþingi.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)