lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Mig langaði að koma hér upp undir þessum lið sem tiltölulega nýr þingmaður á þessu þingi. Það er margt sem hefur komið manni á óvart í störfum þingsins og ég ætla nú ekki að fara að rekja það allt fyrir ykkur. Mig langar samt aðeins að tala frá mínu brjósti hvað þetta varðar og þá umræðu sem hér hefur verið, varðandi það að kallað hafi verið eftir viðveru stjórnarliða í þeirri umræðu sem hefur verið síðustu daga. Ég get sagt það fyrir mitt leyti að ég held að ég sé búinn að vera hér nánast á hverjum einasta degi þar til dagskrá lýkur, þangað til að þingfundi er slitið hér í þessu húsi og það hefur ekkert verið ofboðslega þéttsetinn bekkurinn í þingsal eða hér frammi á sama tíma og ég hér í þessu húsi. Það er hins vegar gríðarlega mikilvægt fyrir mig og fyrir okkur, að mínu viti, að við séum hér og hlustum á þá umræðu sem hér fer fram (Forseti hringir.) og tökum hana síðan inn í nefndir. Ég er formaður í atvinnuveganefnd (Forseti hringir.) og það skiptir mig bara máli að hlusta, ekkert síður en að taka þátt í umræðunni. Virk hlustun er gríðarlega mikilvægt vopn og við eigum að nýta það ekki síður. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)