152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við erum að greiða atkvæði um lengingu þingfundar. Við skulum gera smá pásu. Að öllum líkindum greiðir stjórnarmeirihlutinn atkvæði með þessu og tekur síðan sama og engan þátt í umræðunni á fundi sem þessi sami þingmeirihluti er að biðja um að sé lengdur. Ef við tölum aðeins um heiðarleika þá virkar það nefnilega þannig að meiri hluti þingmanna tekur sér dagskrárvald hérna á þingi og fer með það á þann hátt að hann dælir einfaldlega bara málum inn á dagskrá þingsins og svo bara gerist það sem gerist. Það er ákvörðun, sérstaklega forseta, að haga málum þannig. Það er hægt að velja að gera hlutina öðruvísi eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson talaði um áðan, að tala við þingmenn til þess að það gerist sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason sagði; að fólk viti hvenær mál eru á dagskrá. Það er ekki einu sinni reynt. Það er það (Forseti hringir.) sem við erum að gera athugasemdir við. Núna er verið að lengja þingfund allt í einu fram undir miðnætti og það þýðir væntanlega að það eru þó nokkur mál sem bætast við sem fólk þarf að undirbúa sig fyrir núna (Forseti hringir.) af því að það var ekkert að búast við því að þau mál kæmust á dagskrá.

(Forseti (BÁ): Forseti getur þess að þau mál sem eru hér á dagskrá hafa verið á dagskrá alla vikuna og góðan hluta síðustu viku líka þannig að það hefur legið fyrir að það gæti komið til umræðu um þau.)