152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta hefur verið fróðleg umræða um lengd þingfundar. Af henni virðist mér mega læra að ef eitthvað lítur út eins og málþóf og hljómar eins og málþóf og hefur eiginlega lyktina af málþófi þá er það næstum því alveg örugglega bara málefnaleg umræða stjórnarandstöðunnar þar sem þeir koma hver á eftir öðrum að rökræða um stjórnarmál. Þeir þurfa tíma til þess og ef eitthvað er þá þyrfti umræðan að vera lengri, vegna þess að ég hef heyrt það hér að það vanti fleiri ræðumenn í umræðuna. Þess vegna hljótum við öll að styðja tillögu forsetans um að lengja fund og taka þessi stóru þjóðþrifamál sem hér eru til umræðu rækilega á dagskrá og ræða þau í þaula.