152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:12]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það sem mér þykir furðulegt við þetta allt saman er að við fáum tölvupóst frá forseta í morgun þar sem stjórnarandstaðan lýsir því yfir að við séum ekki samþykk því að hafa lengri þingfund því að við sjáum ekki rökin fyrir því eða að ástæða sé til þess. Af hverju kallar forseti ekki bara þingflokksformenn á fund í staðinn fyrir að beita einhverri svona taktík og svona brögðum, að fara að kalla eftir atkvæðagreiðslu um lengri þingfund og neyða lengri þingfund ofan í stjórnarandstöðuna með meirihlutavaldi? Það er þessi ofbeldistaktík sem alltaf er notuð hérna þegar meiri hlutinn fær ekki sínu framgengt. Hæstv. fjármálaráðherra talar um að stjórnarandstaðan sé augljóslega í einhverju málþófi. Ég segi bara: (Gripið fram í.) Þú hefur ekki séð neitt enn þá. En þetta er ekki málþóf. Þetta er málefnaleg umræða sem við eigum hérna. (Forseti hringir.) Ef stjórnarliðar feila á sínu eigin skipulagsleysi og leggja mál sín fram allt, allt, allt of seint hérna, þá legg ég til að (Forseti hringir.) stjórnarliðar kalli stjórnarandstöðuna á fund og semji við okkur, tali við okkur, segi okkur hvernig við getum unnið (Forseti hringir.) betur saman, í staðinn fyrir að beita alltaf meirihlutaofbeldi hérna til að ná hlutunum í gegn. (Forseti hringir.) Talið þið bara við okkur.

(Forseti (BÁ): Í tilefni af ræðu hv. þingmanns vill forseti geta þess að hann hefur í nokkur skipti leitað eftir því hvort samkomulag gæti náðst um það að þingfundur gæti staðið lengur og það hefur aldrei verið samþykkt af hálfu sumra fulltrúa stjórnarandstöðunnar. Það gerir það að verkum að forseti veltir fyrir sér hvaða önnur úrræði þingskapa eru fyrir hendi.)