lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég segi já við þessari tillögu. Mig langar líka að benda þinginu á að nú hef ég beðið í að ég held að verða um viku vegna þess að ég þarf að mæla fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um listamannalaun. Þetta er tímabundin fjölgun starfslauna til handa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum sem hafa þurft að þola 87% tekjufall í kórónuveirufaraldrinum. 87% tekjufall. Hér erum við líka að koma til móts við unga listafólkið okkar og ég bið um að fá að mæla fyrir þessu máli. Ég tek undir orð hv. þm. Jakobs Frímanns Magnússonar um að við þurfum að ná taktinum. Þetta er mikilvægt mál, listamennirnir okkar bíða og þeir eiga skilið að við göngum frá þessu máli.