lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Forsætisnefnd samþykkir starfsáætlun og samþykkir einnig á fundum sínum að víkja frá þeirri starfsáætlun sem liggur fyrir. Það var samþykkt í forsætisnefnd að fella niður nefndafundi í síðustu viku og gera þann dag að þingfundardegi þannig að allar nefndir þurftu þá að hliðra til í sínum störfum vegna þess. Þá tók forsætisnefnd þá ákvörðun að tilmælum forseta þings að fella niður tvo nefndadaga í þessari viku og gera þá daga að þingfundardögum, tveimur heilum dögum, löngum dögum, og var það samþykkt. Þingflokksformenn gerðu ekki athugasemdir við þetta. Þetta var samtalið sem átti sér stað milli þingflokksformanna og forseta og svo samþykkti forsætisnefnd þetta. Þetta er samtal sem átti sér stað. Í tölvupósti stingur svo forseti upp á að það verði hérna skyndileg breyting á deginum í dag, fyrirvaralaus breyting, öllum að óvörum. Það eru þessi vinnubrögð sem ég vil mótmæla af því að þau setja ekki (Forseti hringir.) góðan brag á þingstörfin hér á fyrsta ári þessa kjörtímabils, löngu áður en þinglok renna upp. (Forseti hringir.) Þess vegna mun ég ekki greiða atkvæði með þessu. Ég er ekki að veigra mér (Forseti hringir.) við að vinna hér eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir var að ýja að. Ég hef verið hér öll kvöld og staðið vaktina.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á að þegar þingmenn gera grein fyrir atkvæði sínu þá hafa þeir til þess eina mínútu.)