lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari tillögu. Það er ekki vinnutíminn sem skiptir máli. Það að vinna allan sólarhringinn og flytja ræður klukkan eitt, tvö á nóttunni er ekki það sem skiptir máli heldur gæði þeirra mála sem eru afgreidd frá hinu háa Alþingi. Gæði og fjöldi, það er það sem skiptir máli. Til að ná því markmiði þarf að skoða einstök mál með gagnrýnum hætti og ákveða hvaða mál eigi að ná fram að ganga. Þá er langbest að gera það sem fyrst í ferlinu, ekki að gera það í lok þings. Það er langbest að semja um það sem allra fyrst hvaða mál stjórnarinnar, sem væntanlega ná öll fram að ganga, a.m.k. samkvæmt nýrri þingmálaskrá, og hvaða mál stjórnarandstöðunnar ná fram að ganga. Það er þannig sem þetta gengur fyrir sig. Það gengur alltaf illa þegar á að fara að hunsa minni hlutann algerlega, keyra yfir hann í krafti þingmeirihlutans. (Forseti hringir.) Þess vegna erum við í þeirri stöðu sem við erum í dag og (Forseti hringir.) þess vegna erum við í þessari ómenningu sem við erum búin að ræða hér í dag og þess vegna er þessi atkvæðagreiðsla. Ég segi nei.