152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:33]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari tillögu. Ég tel ekki þörf á henni. Ég tel að verið sé að hegna okkur í minni hlutanum fyrir trassaskap meiri hlutans við það að leggja fram þau mál sem þau vilja leggja áherslu á á þessu þingi. Ég tel þetta ekki tímabært. Mér finnst þetta ósanngjarnt og með öllu óeðlilegt og ástæðulaust. Ég segi nei.