152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:33]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari tillögu vegna þess að það hefði aldrei þurft að koma til hennar ef starfshættir væru eðlilegir hér á Alþingi. Hæstv. forseti talaði um að hafa sent einhverja tölvupósta til þingflokksformanna og leit á það sem samráð og að reyna að ná samkomulagi við þingflokksformennina. Þegar þeir voru ekki til í að lengja þingfund þá voru tilraunir til samkomulags bara einhvern veginn ónýtar. Þetta er auðvitað ekki samtal. Þetta er ekki tilraun til samkomulags. Þetta er ekki að reyna að koma til móts við stjórnarandstöðuna á nokkurn hátt. Þetta er ekki að spyrja stjórnarandstöðuna hvort það sé eitthvað hægt að gera til að liðka fyrir fyrst að 1. umr. um mál er svona hræðilega mikil byrði á þingstörfunum, þótt ég taki nú ekki undir það.

Það er alger óþarfi að framlengja hér þingfund en það væri þá óskandi að sjá þá hv. þingmenn meiri hlutans, sem ætla að greiða atkvæði með lengdum þingfundi, a.m.k. sitja hér í salnum og taka þátt í umræðunni. Sem þingmaður er ekki nóg að hlusta bara með virkri hlustun, eins og við höfum heyrt hér. Tilgangur okkar er að taka þátt í umræðum. (Forseti hringir.) Ég væri til í að vita hvers vegna stjórnarþingmenn eru að leggja fram þessi mál sem þeir leggja fram. Við fáum bara ekkert frá þeim. Í alvörunni. Það er mjög skrýtið.