lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Það er alveg staðreynd að mál sem koma hérna inn eru tiltölulega illa unnin, mörg hver. Það hefur sýnt sig einmitt í þeim málum sem hafa verið afturkölluð. Það er eðlilegt í þessum aðstæðum að ræða þau mál. Það er ekkert óeðlilegt við það. Það sem við sjáum hérna er sem sagt að hæstv. forseti sendir tölvupóst: Gæti ekki verið samkomulag um að lengja þingfund? — Til hvers? Til að ræða fleiri mál? Hvað þýðir það í stóra samhenginu? Til þess að þingstörf gangi eðlilega fyrir sig varðandi þingmál stjórnarandstöðunnar t.d., sé bara haldið í gíslingu fram og til baka? Það er meiri hlutinn sem tekur alltaf allt dagskrárvaldið. Það er meiri hlutinn sem reynir að stjórna dagskrárvaldinu þannig að bara málefni meiri hlutans komist að. Þannig virkar það.
Hvað þýðir það þá þegar verið er að troða ofan í okkur lengri þingfundi með atkvæðagreiðslu meiri hluta þingmanna? Er ekki eðlilegt að bregðast ókvæða við því? Ég myndi halda það. Til hvers ætti ég (Forseti hringir.) að hlusta á svona samningaviðræður, í alvöru? Það er ekki einu sinni reynt að spyrja: (Forseti hringir.) Gætum við afgreitt þessi mál í sameiningu og komið þeim inn í nefnd? Og það þýðir að kannski (Forseti hringir.) að einhver mál frá stjórnarandstöðunni verði tekin á dagskrá í nefnd, svona í eðlilegu ferli, eins og (Forseti hringir.) hefur verið talað um hérna lengi: Það þarf nú að vinna málin í nefnd, það þarf að fá umsagnir og svoleiðis. Og svo er ekkert gert í því. (Forseti hringir.) Það er kjarni vandamálsins sem er hérna. Við búum við ofríki meiri hlutans (Forseti hringir.) — og mér er alveg sama um þessa bjöllu — (Forseti hringir.) það er algerlega óþarft að gera þetta svona. (Forseti hringir.) Þannig að að sjálfsögðu bregst ég ókvæða við (Forseti hringir.) þegar verið er að troða ofan í okkur lengri þingfundi.
(Forseti (BÁ): Forseti áminnir þingmenn …)
(BLG: Mér er alveg sama.)
(Forseti (BÁ): Forseti áminnir þingmenn um (Gripið fram í.)að sýna forseta hæfilega virðingu í ræðustól og eins þegar þeir eru komnir úr ræðustól.)