um fundarstjórn.
Forseti. Mér heyrðist hér fyrr í dag að forseta þætti verra að fá einhverja sögukennslu eða áminningu um hefð og siði hér í sal en ég vil bara rifja upp við forseta, sem þó hefur setið hér aðeins lengur en ég, að þegar beðið er um endurtekningu á atkvæðagreiðslu þá verða forsetar einfaldlega við því, þeir hafa einfaldlega orðið við því, nema forseti vilji fela þá staðreynd að stjórnarliðar spruttu hér úr sætum sínum strax og þeir gátu til að þurfa ekki að horfa framan í fólkið sem það ætlar að láta sjá eitt um lýðræðislega umræðu í þessum sal. Stjórnarliðarnir sem segja okkur að hætta bara að væla og mæta í vinnuna en eru öll horfin í mat eða út í bæ eða hvert sem er. Hér er tómur ráðherrabekkur fyrir utan umhverfis-, orku- og auðlinda — nei, hvað hann heitir. [Hlátur í þingsal.] (Umhvrh.: Sem er nú ekkert lítið.) Og forseti stendur með þessu. Forseti alls Alþingis á að standa með öllu Alþingi, ekki stjórnarliðunum sem geta ekki einu sinni setið á rassinum í gegnum eina einustu atkvæðagreiðslu. Það var ekki meira sem við vorum að biðja um, að þeir myndu sitja hér í sætum sínum og greiða atkvæði um (Forseti hringir.) lengda þingfundinn sem er ekki þörf á nema vegna skipulagsleysis forseta og ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)