152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[12:41]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Forseti óskaði eftir ástæðu þess að endurtaka atkvæðagreiðsluna. Þannig var að áður en virðulegur forseti ætlaði að fara að tilkynna niðurstöður atkvæðagreiðslunnar þá varð allur skjárinn tómur af atkvæðum, sást ekkert á hann. Með öðrum orðum: Það var ekki áður en atkvæðagreiðslu lauk mögulegt að sjá hvernig aðrir voru að greiða atkvæði. Þetta er eflaust hægt að sjá á upptökum í salnum. Þetta er ástæðan, virðulegi forseti, fyrir því að við erum að óska eftir þessu. Við vonum að virðulegur forseti sýni þann góða brag að fylgja þingsköpum.

(Forseti (BÁ): Forseti fylgir þingsköpum.)