um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Í 5. mgr. 80. gr. laga um þingsköp Alþingis segir, með leyfi forseta:
„Atkvæðagreiðslu skv. 2. mgr. má endurtaka þótt úrslitum hennar hafi verið lýst ef forseti telur ástæðu til þess eða ósk berst um það frá þingmanni.“
Ákvæðið gerir enga kröfu um rökstuðning. Hins vegar vil ég benda á það að þegar við vorum búin að greiða okkar atkvæði þá sprettur úr sæti hv. þm. Ágúst Bjarni Garðarsson sem situr við hliðina á mér hér í salnum og segir við mig: Ekki breyta. Hann er farinn úr þingsal þegar atkvæðagreiðslunni lýkur. Það er ástæða til þess að fólk sitji kyrrt í sæti sínu þar til atkvæðagreiðslu er lokið. Ég vil bara benda á þetta.