152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[12:43]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað gott og blessað að komið hafi fram einhver rökstuðningur hér, en nú hef ég verið hér í nokkur ár og aldrei hef ég upplifað það að forseti hafi kallað eftir rökstuðningi fyrir því hvers vegna endurtaka eigi atkvæðagreiðslu. Aldrei. Ég hefði nú haldið og hef alltaf einhvern veginn upplifað hæstv. forseta sem frekar íhaldssaman í hefðum þingsins, (Gripið fram í: Nei, ekki láta svona.) svona heilt yfir litið. — Hæstv. ráðherra er ósammála mér. Nú veit ég ekki alveg, vegna þess að ég hef a.m.k. unnið með honum í nokkur ár sem þingflokksformaður og við vorum ekki alltaf sammála um hvaða framfaraskref væri gott að taka hérna í þinginu o.s.frv. og um mikilvægi hefða og siða hér í þinginu og svona. Þannig að þetta kemur mér á óvart og ég væri til í að óska eftir rökstuðningi frá forseta fyrir því hvers vegna hann krefst rökstuðnings í þetta eina skipti. Þetta eina skipti. Sá rökstuðningur væri vissulega áhugaverður rökstuðningur.